28janúar

búin að eiga birgittuna mína í 4 ár :)

vá hvað tíminn flýgur !!!
elsku litla stelpan mín orðin 4 ára , svo yndisleg og svo dugleg :)
ótrúlegt hvað  tíminn flýgur !!!
ég sett inn myndir á barnaland hjá krökkonum af afmælinu hennar birgittu
www.loveis.barnaland.is   og pinnið er bara bjallið í mig ef þið vitið það ekki
og munið gestabókiina :)
28. janúar 2009 klukkan 23:47
maria sif erics.
2 athugasemdir
21janúar

er rómantíkin dauð???

hvað varð um alla rómantík ? er hun ekki til lengur ? er það ekki í tísku eða hvað?
ég persónulega elska rómantík,, finst gaman að vera rómantísk þá sérstaklega þegar það er tekið vel á móti henni og hun metin :)
þegar manni er komið á óvart með eitthvað sem hinn aðilinn gerir ekki á hverjum deigi og svo eru það litlu hlutirnir !!
fann einmitt gamlan vin á facebook og ómæ hann er giftur og hann tala svooo fallega um konuna sína seigir hvað hun er falleg og hvað hann elskar hana óm ég fékk allveg gæsahuð !!! þetta var svo rómo

tata my love ones
21. janúar 2009 klukkan 00:17
maria sif erics.
Engin athugasemd
09janúar

farin í VERKFALL !!

þá er komið aðþví gott fólk ,, já ég er farin í verkfall hér á heimilinu sem hin típíska húsmóðir.
eða svona þanig ég geri nátturulega eitthvað hér heima en bara í mjög litlum mæli :)
td. var ég spurð hvað ætti að vera í kvöldmat í kvöld ,,,
ég svaraði :bara það sem þú eldar elskan :)

ég er sko komin með grænar af þessu öllu hér heima
halló ég er ekki búin að fá djúpan og góðan svefn í 5 mánuði og svo þeggar ég næ að gefa litla prinsinum mínum vel (á daginn ) og skríð með honum upp í rúm og legg mig ,,, þá á ég að vera endalaust þakklált fyrir það að hann leyfði mer að hvíla mig %&#$%#$% ...
ég labba um og næ í það sem þarf að fara í þvott , þvæ það , þurka og oft tek ég það inn í herbergi legg á rúmið og ætla að ganga frá því seinna !!!! þá kemur karlremban og humm og byrjar að seigja mér til verka það er nú ekki erfitt að ganga frá ,, þetta tekur enga stund,, þú lætur þetta alltaf safnast fyrir, það er ekki eins og þú þurfir að gera mikið !!!!!!!!!!!!!!!!!
HALLÓ  ístað þess að eyða þvílíkum tíma í að rífast og nöldra í mér og gera lítið úr því sem ég er að gera hunskastu þá bara til að taka þvottnn og brhjota saman og inn í skáp !!!!!!!!!!!!!!!!! aaaaaaaaaaaaaaaaaaarrrrrrrrrrrrrrrrrrrg ég er að tapa mér í pirringi og nú ætla ég ekki að gera neitt heima (eða sem minnst )

VERKFALL ER FORMLEGA BYRJAÐ :)

09. janúar 2009 klukkan 21:06
maria sif erics.
2 athugasemdir
07janúar

ég þoli ekki karlrembur !!!!!

hvað er málið með karrembur sem halda að þer eru hápunkturinn,, tilgangurinn .....
halló nei !!!!!
ég ætla mér ekki að verða einhver þræll fyrir karlkynið ,,, nei takk ekki ég !!!!!
karlmenn eru tilætlunarsamir,latir og yfirhöfuð leiðinlegir.
hvað er málið með það að bjóða sínu fólki og vinum í mat og konan á að elda og laga til fyrir þetta allt saman og vera kurteis og auðvitað sína virðingu !!!
en þegar fólkið hjá konunni kemur í mat þá er allt annað mál það er setið í tölvunni og notað barnið sem afsökun að geta ekki hjálpað því hann er með barnið ,,,
hann talar í síman við matarborðið ,
og þegar konan er að ganga frá þá fer hann inn að sofa með fullt hus af gestum !!!!!
sorrý mér finnst þetta ekki ok !!!!
og já til hvers er fæðingarorlof fyrir pabbann ????
endilega svarið því í commenti svo ég geti séð ykkar álit !!!

undirrituð : ég hata karlrembuna hann xxxxxxx

tata yfir og út
07. janúar 2009 klukkan 21:42
maria sif erics.
5 athugasemdir
31desember

síðasta færsla ársins

þetta ár er búið að vera yndislegt :)
börnin mín vaxa og dafna og litli pjakkurinn minn fæddist :)
ég er svo þakklát að guð treystir mér fyrir englonum hans sem eru börnin mín :)
hverjum hefði dootið þetta í hug bara 3 barna móðir og stend mig sko bara vel í þessu :)

en nú er að skella á nýtt ár og ég er búin að gera pínu plön :
- ég er að fara að byrja í ræktinni  (ætla að vera fitt og flott)
-ég ætla að hætta að reykja
-langar að vinna á leikskóla (í haust)
-mála meir og gera heimasíðu með myndonum mínum
- og fullt meir  :) .):)

en elsku fólk ég vil þakka ykkur fyrir liðið ár og óska öllum góðs gengis á nýju ári !!!
kossar og knúsar  til þín
31. desember 2008 klukkan 22:31
maria sif erics.
6 athugasemdir
18desember

stumdum er þetta bara svon!!!

jiii ég er svo gjörsamlega að leka niður af þreyttu og ekki bætir stressið á þetta allt saman !!
vá ég sver það ég man ekki hvað það er langt síðan ég fékk að sooooofa óáreitt ;( marfir margir margir mánuðir úff sko .....
ég er svo ekki að ráða við allt núna ég meina ok ég hef ekki sofið heilan svefn í marga mánuði, ég næ engan veiginn að hafa hreint í kringum mig (alltaf endalaus þvottur, óskúrað  gólf, uppvask , og bara drasl út um allt, ekki þrifi inn á wc og fullt í viðbót)svo oná allt þetta þá þarf ég að sinna stelponum og litla pjakk svo sem leika,spjalla, hjálpa þeim og svona allskonar mömmu dót sem ég hef oft bara enga orku í + að elda mat og bað tími og allt !!!! jiiii það er ekki skrítið að mér finist ég stundum misheppnuð :( snökt snökt !!!!!!!
æ ég ákvað að henda þessu hérna inn og opna á þetta því ég er með fæðingarþunglyndi og það eina sem doksi vill gera er að senda mig á svefnlyf :( og það vil ég ekki !!!!
en tékka á því ef mer líður betur við að opna á þetta smá herna !!!!
annars elska ég börnin mín endalaust mikið og þau gefa mér tilgang til að halda áfram :)
þau eru yndisleg :)

allavega bless í bili ........
18. desember 2008 klukkan 23:49
maria sif erics.
2 athugasemdir
02desember

krabbameinsskoðun :S

jæja loksins pantaði ég mér tíma í krabbameinsskoðun !!!! ég á sko að vera löngu búin að fara í svona skoðun en alltaf komið með einhverja afsökun, hef ekki tíma, of dýrt eða á ekki pening !!! halló þetta kostar 3000 kr. þetta er sko ekki dýrt og ég hef allveg tíma hef bara alltaf náð að telja mér trú um að fara ekki ,,,
en í gær pantaði ég mér loksins tíma og á að mæta á morgun þetta var ekki flóknari en það :) svo ég er bara ánægð með að gera þetta loksins því jú heilsan er það dýrmætasta sem ég á og ég vil vera til lengi fyrir mig börnin mín og fjölskylduna :)
og halló 3000 kall er ekkert ef maður er með svona og nær að stoppa þetta í tæka tíð :)
svo gaf ástin mín hann kjarri og fallegu börnin mín mer rosa flottar trönur og fullt af strigum í afmælisgjöf svo ég er búin að vera að mála og mála :) finst það svo gaman :)  ætla bráðum að henda inn nokkrum myndum sem ég hef verið að dunda mér með og það væri fínt ef þið gætuð þá commentað á þær hjá mér því ég er ekki hæf um það finnst ég alltaf geta gert meir,betra og flottra en þanig er ég :)

svo vantar mig hugmyndir með hvað ég á að gefa ástinn minni :)

kossar og knúsar :)

ps. ætla svo að hafa síðuna opna í smá tíma og sjá hvort það sé ekki í lagi núna hehehe
02. desember 2008 klukkan 19:18
maria sif erics.
2 athugasemdir
24nóvember

afmælisdagurinn minn í dag

ég á afmæli íííí dag :) já og jæja ég er orðin þrítug bara komin á fertugsaldurinn ,,, úfff sko :S
en þetta er samt búin að vera fínn dagur búin að fá fullt af fallegum kveðjum frá svooo mörgum ,, takk fyrir það :)
samt svoldið skrítið að hafa ekki ástina mína heima í viku ,, sakna svooo kjarra minns :)
er samt búin að vera rosa þreytt eitthvað í dag og er með einhvern kvíðahnút í maganum en hef ekki hugmund um afhverju ,,, óþægileg tilfining samt en hun fer :)
en ég ætlaði nú ekkert að blogga neitt bara henda inn risa koss og knús á alla og þakka fyrir mig og allar kveðjunar :)

best að fara að lúlla sér núna þar sem maður er orðin svo gömul hehehe..
24. nóvember 2008 klukkan 23:30
maria sif erics.
5 athugasemdir
13nóvember

Ó MÆ !!!!!

já sko málið er þanig að ég er bara rosa sár :(
birgitta var að klippa á sér hárið, laumaðist í skæri og inn í herbergi til alexöndru og kliptti smá af fallega fallega hárinu sínu ( ég gerði það líka á hennar aldri ) vona bara að ég þurfi ekki að klippa meir til að jafna þetta ,, svo klippti hun lakið á rúminu líka ,,, litli uppreisarseggurinn minn úff,,
svo var ég að tala við hana um þetta og hun þver neitar að hafa gert þetta ,, þetta var gagga ( sem er ekki til í raun og veru )..
svo fólk hvað á ég að gera ??? nú verður gagga bara að pakka töskunni sinni og flytja úr hausnum hennar :( ,, en hvernig fer ég að því ??? S.O.S....
og já ef einhvern langar að gefa mér eitthvað í afmælis og jólagjöf þá langar mig í striga og málingu allt mitt er að vera búið :) hehehe bara svona smá uppástunga ,, þetta er ódýrast í verkfæralagernum í smáranum og grænu  systrunum !!!
en jæja ætla taka upp uppeldisbókina og sjá hvernig á að bregðast við ýmunduðum vinum !!!! og endilega hjálpið mér ef þið kunnið eitthvað á svona ,, bara skrifa mér comment takk :)
+

kossar og knúsar á alla og þig líka :)
13. nóvember 2008 klukkan 20:21
maria sif erics.
3 athugasemdir
11nóvember

Þakklát fyrir að vera ég

ég var að lesa fréttirnar um ástandið í heiminum ,, í kongó og svona og ef fólkið þar fengi að velja að skipta og koma hingað mundi það örugglega hiklaust gera það , þá væru jól hjá þeim á hverjum degi, svo ég er þakklát fyrir að vera heima á íslandi í kreppunni :)
svo er birgitta losins búin með hlaupabóluna og vá hun stóð sig eins og hetja hvartaði ekkert undan kláða og var rosa hress ,, hun er svooo dugleg þessi elska :)
og já svo um daginn hringdi mamma hans begga í mig og kjarri svaraði símanum og spurði hver þetta væri,,, og svo þegar ég talaði við hana saði hun að hann hefði verið dónalegur við hana og það væri eins og hann væri að reyna stjórna hvern ég tala við (halló ) og að hún vildi ekki missa samband við birgittu dís en hun vildi ekki koma að heimsækja hana útaf kjarra og ble ble ble ,,,  hvað er hún að reyna að koma þessu yfir á kjarra hun kemur mesta lagi tvisvar á ári til að hitta hana , svo ég held að hun sé nú bara með samvikubit og sé að reyna koma kenna kjarra um ,, æ fattið þið hvað ég meina ,, allavega hun er eitthvað skrítin finst mér , ég hef nú bara verið kurteis við hana og margoft boðið henni í heimsókn og svona ,, ég ætla að senda henni mail og sjá svo hvað gerist !!!

en jæja nú er litli prinsinn minn að kalla svo .....

tata  :)
11. nóvember 2008 klukkan 01:22
maria sif erics.
3 athugasemdir

Innskráningar kubbur

Auglýsing

info um mo

  • Nafn: maria sif erics.
  • Netfang: mariasif78@gmail.com
  • Staður: rvk
  • Atvinna: er í skóla :)
  • Hjúskaparstaða: á yndislegan kærasta sem ég elska svo heitt
  • Um mig: hummm ég er bara ég ! ég elska stelpunar mínar rosalega mest og finnst rosa gaman að vera mamma,, og ef þið viljið vita meir þá bara spurja vini mína þau vita allt um mig ég er nebblilega eins og opin bók hehe eða það held ég sko :)
  • Annað: sendu jákvæða orku út í lífið þá kemur jákvæð orka til baka til þín :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

hvert þeirra er líkast mér , í hverjum á ég mest í (ég og fjölskyldan mín )

fallegustu börnin í öllum heimi og geimi